Um Grammið

Gagnvirkt kennslu- og verkfærasafn fyrir rekstur veitingahúsa

G

Um Grammið

Grammið er gagnvirkt kennslu- og verkfærasafn fyrir rekstur veitingahúsa. Markmiðið er að tengja fræði og verklegt starf: reiknivélar fyrir kostnað, hráefnisútreikninga og rýrnun; verkefnabanki með kennslulýsingum; og einfalt kerfi til að vinna og meta verkefni. Allt efni er staðfært að íslenskum aðstæðum, með áherslu á ábyrgan rekstur og minni sóun.

Grammið styður fagfólk við að vera betur undirbúið til að reka sína staði og styður nemendur við að skilja mikilvægi þess að þekkja hráefniskostnað — ásamt mörgu öðru — og hjálpar þeim að yfirfæra kenningar í raunveruleg verkefni: frá grunnhugmyndafræði reksturs yfir í matseðlagerð, verðlagningu og gæði þjónustu. Lögð er rík áhersla á að nýta gervigreind til að fá skjóta endurgjöf þegar þátttakendur spreyta sig á verkefnum og fá þannig strax að vita hvort þeir séu á réttri leið.

Reiknivélar

Kostnaðarútreikningar, hráefnisútreikninga og rýrnunarmat fyrir veitingarekstur.

Verkefnabanki

Kennslulýsingar og verkefni sem tengja fræði við verklegt starf.

Gervigreind

Skjót endurgjöf á verkefni með hjálp gervigreindar.

H

Um Hinrik Carl

Hinrik Carl Ellertsson er kennari og matreiðslumaður hjá Menntaskólanum í Kópavogi, og leggur ríka áherslu á fagmennsku, ábyrga nýtingu hráefna og gagnadrifna nálgun í eldhúsi. Hann hefur þróað kennsluefni og verkfæri sem einfalda kostnaðareftirlit og matseðlagerð — og leiðir fjölbreytt verkefni á Norðurslóðum, m.a. Arctic Young Chef-keppnina.

Í gegnum vinnu hans undanfarin ár hefur hann sankað að sér miklum fróðleik, m.a. sem rekstrarstjóri hjá Dill og yfirkokkur á Spírunni, ásamt fjölmörgum öðrum störfum. Hinrik blandar saman reynslu úr veitingarekstri og menntun: skýrar aðferðir, mælanlegan árangur og skráningar sem gera þátttakendum kleift að ná stöðugum árangri. Grammið er framhald af þeirri vinnu — hagnýt, sýnileg yfirsýn sem nýtist í kennslu og daglegri vinnu.

Reynsla

  • Rekstrarstjóri hjá Dill
  • Yfirkokkur á Spírunni
  • Leiðir Arctic Young Chef

Áherslur

  • Ábyrgur rekstur og minni sóun
  • Staðfært að íslenskum aðstæðum
  • Tengir fræði og verklegt starf