16.3 Umhverfisvænar tæknilausnir

Til að mæta kröfum um sjálfbærni hafa þjónustuaðilar í veitingarekstri takast á við matarsóun með tækni eins og Winnow, sem skráir magn og tegund matarúrgangs eftir hverja vöru og býður upp á greiningar sem byggja á myndgreiningu (Winnow Solutions, 2023). Í kjölfar þess eru birgjar og framleiðendur hvattir til að draga úr umbúðarefni og innleiða endurvinnslugerða lausnir.

Einnig má nota rafrænar vörutalningar og innanhúss skynjara sem fylgjast með raka- og hitastigi, sem tryggir að gæði hráefna haldist órofin og veiti stjórnendum yfirsýn yfir aðbúnað í eldhúsum og lager. Gott kerfi fyrir það er E-smiley (Apicbase, 2022).

Rekjanleiki hráefna með blockchain-tækni skapar óyggjandi vottorð um uppruna, vinnslu og flutning, sem styrkir traust gesta og uppfyllir ströngustu kröfur um öryggi matvæla (Li & Qi, 2022).