11.2 Þjónustu stílar eftir tegund veitingastaðar

Þjónustustíll endurspeglar stefnu staðarins og þarf að vera samkvæmur í orðræðu, klæðnaði, viðmóti og verklagi. Hér eru dæmi um algenga þjónustustíla:

Þjónustustíll

Einkenni

Dæmi um veitingastað

Casual Dining

Vinalegt, afslappað, borðþjónusta, breiður matseðill

IKEA veitingasalur, American style grill

Fine Dining

Fágun, hvítir dúkar, hljóðlát þjónusta, vínpörun, há verð

Dill, ÓX, Michelin-staðir

Pub

Vinalegt andrúmsloft, stundum sjálfsafgreiðsla á drykkjum, borðþjónusta í sumum tilfellum

The Dubliner, English pub

Bistro

Léttur franskur eða evrópskur stíll, áhersla á hráefni og fagmennsku, oft með chalkboard-matseðla

Snaps, Mat Bar

Bar

Áhersla á drykki, lítil sem engin matseðilsþjónusta, stundum þjónar borin fram á bakka

Kaffibarinn, Jungle cocktail bar

Fast Casual

Meiri gæði en skyndibiti, pantað við afgreiðsluborð, oft sjálfsafgreiðsla með vinalegu yfirbragði

Gló, Lemon, Hraðlestin

Quick Service (QSR)

Skyndibiti, skjót afgreiðsla, lágur verðsvið

Subway, KFC