GrammiðVefbók
GrammiðGrammið

© 2026 Grammið. Allur réttur áskilinn.

Inngangur
Kafli 1 Grunnatriði veitingareksturs
Kafli 2: Hráefni og rýrnun
Kafli 3: Kostnaðargreining og mat á hráefni
Kafli 4: Birgðastýring og nýting hráefnis
Kafli 5: Tækni, sjálfvirkni og gervigreind í eldhúsrekstri
Kafli 6: Verðlagning og framlegð
Kafli 7 : Sala og markaðssetning á veitingastöðum
Kafli 8: Birgðir, móttaka og matvælaöryggi
Kafli 9 – Stöðlun og lýsing hráefna og rétta
Kafli 11 — Umsagnir, samfélagsmiðlar og stafrænt orðspor
Kafli 11 – Þjónusta og gesta upplifun – skipulag og fagmennska
Kafli 12.Frá hugmynd að rekstri
13 Kafli — Rekstrarmælikvarðar og árangursstýring
Kafli 14. Hvað er ferlivinna í veitingarekstri?
Kafli 15. Stafrænar lausnir í þjónustu
Kafli 16 Matvælaöryggi og HACCP
Kafli 17. Ráðningarferlið
Kafli 18 Móttaka nema í veitinga greinum
Kafli 19 – Framtíð veitingarekstrar: Áskoranir og tækifæri
19.1 Sjálfbærni og vistspor19.2 Nýsköpun og tækni19.3 Fagmenntun og ný kynslóð starfsfólks19.4 Neytenda “trend”19.5 Æfingar og verkefni19.6 Heimildaskrá
Kafli 20 -Orðskýringasafn

19.2 Nýsköpun og tækni

Tækniþróun og nýsköpun leika lykilhlutverk í þróun veitingarekstrar næstu áratugi. Gervigreind (AI) er að ryðja sér til rúms þegar kemur að spálíkönum fyrir aðsókn og pöntunarhegðun gesta, þannig að hægt er að laga matseðilinn í rauntíma eftir eftirspurn og lágmarka matarsóun (World Economic Forum, 2024). Sjálfvirk pöntunarkerfi í eldhúsi og afgreiðslu geta aukið afköst og dregið úr biðtímum, en samhliða því þarf að tryggja mannlega þáttinn í þjónustu til að viðhalda persónulegu andrúmslofti (McKinsey & Company, 2023).

Á sviði matartækni er ýmiss konar framþróun í prentun fæðisefna („food printing“) að verða raunhæf valkostur, sem öðru­vísi nýtir hráefni til að búa til sérsniðnar eða jafnvel næringabreyttar fæðu (McKinsey & Company, 2023).

Rannsóknir á nýjum próteingjöfum eins og þörungum og skordýra próteini eru einnig í forgrunni, enda getur slík nýjung stuðlað að lægra kolefnisspori og breytt neysluvenjum (European Commission, 2022).

Tölvustudd rekstrarstýring nær til birgðahalds, mannafla og sölugagna sem tengjast í heildstætt kerfi sem varar við skorti eða ofgnótt og tryggir hagkvæmni í rekstri alla daga (World Economic Forum, 2024).