Kafli 9 : Stöðlun og lýsing hráefna og rétta
Í öllum veitingarekstri er grundvallaratriði að starfsfólk fylgi skýrum ferlum til að tryggja stöðugleika. Stöðlun á uppskriftum, hráefnum og vinnulagi lágmarkar mistök, tryggir nákvæma kostnaðarstýringu og auðveldar alla þjálfun.
Söluspá, innkaup og mannaflaáætlun
Góð söluspá er grundvöllur betri innkaupa, minni sóunar og hagkvæmari mönnunar. Þetta myndband nýtist vel til að tengja saman söguleg gögn, innkaupastýringu og daglegar ákvarðanir stjórnenda.