3.1 Hráefnis kostnaður (COGS)
Hráefniskostnaður, oft kallaður Cost of Goods Sold (COGS), lýsir þeim beina kostnaði sem fellur til við framleiðslu einstakra rétta. Í veitingarekstri samanstendur þessi kostnaður af magni og innkaupsverði hráefna, að teknu tilliti til rýrnunar.
Til að finna raunverulegan hráefniskostnað er nauðsynlegt að reikna raunkostnað hvers grams eða kílós og margfalda með því magni sem uppskriftin kallar á. Skilningur á COGS gerir rekstraraðilum kleift að finna lágmarksverð réttar til að standa straum af beinum kostnaði, sem er forsenda þess að geta hagrætt í innkaupum og aukið arðsemi.
Raunkostnaður og grunnútreikningar
Þetta myndband nýtist sem einföld inngangsútskýring á food cost útreikningum.