3.2 Framlegð og álagning
Framlegð (e. contribution margin) er sú upphæð sem stendur eftir þegar beinn hráefniskostnaður hefur verið dreginn frá söluverði.
Dæmi: Ef hráefniskostnaður súkkulaðiköku er 100 kr. og hún er seld á 150 kr., er framlegðin 50 kr. Þessi framlegð er það svigrúm sem nýtist til að greiða fastan kostnað – eins og leigu, laun og rafmagn – og skapa að lokum hagnað.
Til að ákvarða söluverð út frá hlutfallslegri framlegð er notuð eftirfarandi formúla:
Útsöluverð = Hráefniskostnaður / (1 − Framlegðarhlutfall).
Ef stefnt er að 40% framlegðarhlutfalli fyrir áðurnefnda köku er útreikningurinn: 100 kr. / (1 − 0,40) = 167 kr.
Það er lífsspursmál fyrir reksturinn að framlegðin sé nægjanleg til að standa undir föstum kostnaði.
Stýranlegir þættir áður en verð hækkar
Hér er bent á að verðhækkanir leysa ekki alltaf undirliggjandi rekstrarvanda. Áður en farið er í verðbreytingar þarf að skoða ýmsa aðra þætti eins og t.d. pöntunarferli, skammtastærðir, nýtingu og sóun.
Askrift vantar
Þú þarft virka askrift til að nota þennan hluta. Sendu okkur skilaboð og við setjum þig upp.